október úr sér genginn og Þú byrjar daginn á að rjúfa
drauma um mandólín og vasaÞjófa skyrið er jafnvont
og ævinlega á eftir tannkreminu bláa Þú finnur ekki
sköfuna Því skottið er fullt af hjólbörðum og Þú átt
enn eftir að gera við miðstöðina í húsinu eru allir í
náttfötum með blóðblettum í klofbótinni í gær lentu
tveir fyrir bíl og einn fannst stirðnaður í bakgarði og
Þú horfir í gegnum sólgleraugun upp á efstu hæðir
blokkanna með blómvönd í framsætinu og innan
skamms ertu komin í kaffiboð á hlýlegu heimili
drekkur stíft úr bláu stelli sem móðir húsfreyjunnar
átti upphaflega en sykurmolarnir bráðna seinlega og
eftir hádegið er hvergi sæti að fá á næstdýrasta kaffihúsi
bæjarins Þú Þarft eitthvað bakað til Þess að
Þerra góminn og sólin fer í augun og Þú hugsar aftur
um fjárans nagladekkin og ferð óvart yfir á rauðu
Þegar gamlingi æðir hjá með Þjófavörnina ýlfrandi
og öll ljós blikkandi finnur ennÞá bragðið af skyrinu
og kaffinu úr stellinu en í blokkinni er einhver á leið
niður stigann laufin eru hrunin af brekkuvíðinum og
tilvalið að tálga grein til að leggja í gegnum háls
náungans í dag á jú einhver eftir að deyja Þetta er
vetrardagurinn langi sá lengsti í Þessari viku og hann
mun engan endi taka nema Þú komist fram hjá
brekkuvíðismanni og marri í útihurð og plokkfisklykt
á ganginum og Þú eykur ósjálfrátt hraðann getur
ekki beðið eftir að hækka í sjónvarpi til að yfirgnæfa
daginn sem var dulbúið kvöld allan tímann en Þú
verður að muna eftir nagladekkjunum og Þú verður
að reyna að sofa betur í dag reyndu áreiðanlega allir
að elskast en óvíst hvernig Það tókst í sirkustjöldunum
í kring og Þú Þvingar niður súpunni sem er
alltaf síðan í fyrradag og Þú hellir bláu vatninu